Sjúkrahús

Á sjúkrahúsum er mikilvægt að fagurfræðilegir þættir séu teknir til greina.  Einnig eru hljóðdempun og þægindi mikilvægir þættir er valið er gólfefni.  Auðveld þrif eru þó mikilvægasta krafan og möguleiki á að hafa yfirborðið bakteríudrepandi til að varna smiti.  Hægt er að velja um slétt, mjúkt og glansstig sem og hálkufrítt yfirborð.