Framleiðsla

Framleiðslufyrirtæki einkennast oft af því að um sé að ræða margt fólk sem vinni á gólfinu og því mikilvægt að umhverfið sé aðlaðandi, bjart, snyrtilegt og fólkinu öruggt. Það eru til margar tegundir af vélrænu álagi en hita- og efnaþol venjulega í meðallagi. Í sumum tilfellum er krafa um leiðandi gólfefni, þannig að stöðurafmagn hlaðist ekki upp og myndi neista. Í öðrum tilfellum eins og í lyfja- og matvælaiðnaði, eru kröfur um hreinlæti miklar. Til þess þarf mjög þétt gólfefni, sem auðvelt er að þrífa og jafnvel er farið fram á bakteríudrepandi yfirborð.

epoxy bílastæðahús