IÐNAÐARGÓLF

KREFJANDI YFIRBORÐSEFNI FYRIR KREFJANDI UMHVERFI:

Iðnaðargólf eru að öllu jafnaði undir miklu álagi. Það fer eftir tegund iðnaðarins og getur falið í sér efnaálag, þungaálag og hitaálag. Gólfefnið á ekki bara að vera sterkt og varanlegt heldur þarf það að uppfylla margar aðrar kröfur. Það þarf til dæmis að þola margskonar efnaálag, þarf að þola kalt – og heitt umhverfi og jafnvel vera rafleiðandi. Öll inaðargólf þurfa að vera auðþrífanleg og skapa öruggt og þægilegt vinnuumhverfi.

Gólflausnir Malland bjóða yfir 20 gólf- og veggefnakerfi, úti og inni, sem eiga að spanna þær þarfir sem þörf er á í iðnaði. Efnin eru öll vottuð og sérþjálfaðir starfsmenn sjá um ásettningu þeirra.

Við val á gólfefni geturðu fengið það gólf sem er sniðið að þínum þörfum, Fúgulaust, sterkt, fjótleg ásettning, auðvelt í þrifum sem og viðhaldi. Vegna langrar endingar eru fúgulaus iðnaðargólfefni haghvæm lausn fyrir þig.

Gólflausnir Malland hefur áratuga reynslu í lagningu gólf- og veggefnakerfa fyrir iðnfyrirtæki, undirbúningi og sérlausnir og erum vissir að við getum aðstoðað þig við að finna þá lausn sem þér hentar.

Eftir hverju ert þú að leita ?