Verkstæði
Á verkstæðum er venjulega mikið vélrænt álag. Gólfefnin þurfa því að þola það, ásamt því að vera efnaþolin, auðþrífanleg og ekki safna auðveldlega upp óhreinindum sem erfitt reynist að ná í burtu. Huga skal vel að neistaþoli gólfefnis á slíkum stöðum.